Velkomin á heimasíðunna okkar

Við erum systkinin Alexía Rós, Aþena Inga og Theodór Týr :)

 

 

Alexía Fæddist 15. júlí 2003 kl. 09:03 á hvidovre hospital í danmörku :) Alexía fæddist 20 merkur og 55 cm, með rosalega mikið og fallegt svart hár og brún augu :) Fæðing Alexíu byrjaði með verkjum þann 13 júlí , að kvöldi 14 júlí var ég lögð inn þar sem að hjartsláttur Alexíu var óreglulegur og var haldin undir eftirliti á fæðingardeildinni, fæðingin gekk mjög hægt og kl 8 var ákveðið að ná í dömuna með bráðakeisara, Pabbi Alexíu og María systir mín voru viðstödd alla nóttina en María fékk svo ekki að vera viðstödd keisarann þar sem aðeins einn má koma með og var Pabbi Alexíu að sjálfsögðu með.
Alexíu nafnið er alfarið út í loftið en bæði ég og pabbi hennar féllum fyrir því og var það strax ákveðið snemma á meðgöngu að ef það kæmi stelpa þá mundi hún fá nafnið Alexía :)
Rós er einnig út í loftið en það var ég sem féll fyrir því og var ákveðin í að vilja hafa eitt alíslenskt nafn með þar sem að við jú bjuggum í DK og Alexiu nafnið ekki íslenskt.



Aþena Inga fæddist á landsspítalanum þann 28. júní 2007 kl: 01:40 :) Aþena fæddist 16 merkur og 51 cm, með lítið rautt hár og blá augu :) 27. júní var fæðing Aþenu sett af stað með því að sprengt var á belginn, tæpum 12 tímum seinna var ákveðið að ná í dömuna með keisara þar sem hún var ekki á leiðinni út sjálf :) Ljósmóðirin sem sá um fæðinguna hét Guðrún og læknirinn sem framkvæmdi keisrann heitir Jens A Guðmundsson þau voru bæði yndisleg í alla staði, reyndar allir sem komu að fæðingunni voru alveg frábært :) Amma Fríða var viðstödd og hjálpaði mér í gegnum þetta allt saman :) enda hefði ég ekki getað þetta án hennar hún var bara frábær og mikil hjálp :)
Nafnið Aþena var svo valið út í loftið og hreinlega því að ég fékk kylliflöt fyrir því þegar ég sá það fyrst :) Aftur á móti er Inga í höfuðið á Fríðu Ömmu enda er hún búin að vera eins og klettur við hlið mér gegnum meðgönguna og fæðinguna :) (reyndar eru fleiri sem að fá nöfnur í leiðinni því að margir nánir meðlimir eru með Inga/ingi nafnið :) báðir afar Aþenu, móðirbróðir, langafi og afasystir :)





 

 

Theodór Týr komin í heiminn 24. maí 2011

Theodór kom í heiminn með plönuðum keisara þann 24. maí 2011 kl 08:50

Hann var fæddur 4540 grömm og 55 cm - 18 merkur

Ljósmóðirin sem var með okkur heitir Ólafía Aradóttir og fæðingarlæknarnir heita Ebba Margrét og Harpa Torfadóttir.

Mamma og Pabbi völdu nafnið mitt afþví okkur finnst það fallegt og fara fallega stráknum okkar svo vel :)














Stjörnumerkið okkar Alexíu og Aþenu : Krabbinn

Börn í krabbamerkinu eru oft mjög viðkvæm og foreldrar mega búast við að mörg tár muni falla í bernsku. Þau hafa því ríka þörf fyrir hlýju og snertingu auk þess sem öryggi skiptir þau gríðarlega miklu máli. Líf þeirra þarf að vera í föstum skorðum og umhverfið gott. Foreldrar barna í krabbamerkinu ættu ekki að rífast mikið í þeirra návist því þau taka allt mjög nærri sér og eru oft lengi að ná sér á strik eftir áföll. Krabbar byrgja oft tilfinningarnar inni og því er mikilvægt að tala við þau um tilfinningar. Dæmigert krabbabarn man alla tíð eftir því þegar það týndist í Hagkaup í tvær mínútur og tekur því sem höfnun. Krabbinn er oft mislyndur og misjafn í skapi, ýmist hress og jákvæður eða þungur og dregur sig inn í skel. Hann er oft rólegur og hlédrægur en getur gosið upp annað slagið vegna þess hve viðkvæmur hann er. Það þarf að umgangast hann af nærgætni og það er ekki sama hvað sagt er við hann og hvernig. Hann tekur margt nærri sér og er móðgunargjarn. Hann er gjarn á að geyma gremjuna innra með sér og láta á engu bera á yfirborðinu. Foreldrar þurfa því að hvetja litla krabbann til að segja frá því sem honum mislíkar. Mestu skiptir að skapa krabbanum öruggt heimilislíf, veita honum hlýju og gefa honum kost á að tjá tilfinningar sínar, t.d. með því að leyfa honum að eiga gæludýr.